Forsetinn hefur í framhaldinu boðist til að gera samning við Demókrata um innflytjendamál og sagðist vera opinn fyrir samkomulagi um að leyfa einhverjum hópi ólöglegra innflytjenda að vera áfram í Bandaríkjunum.
Í frétt The Guardian segir að svo virðist þó sem orð forsetans gangi í berhögg við ákvörðun hans síðastliðinn föstudag um að gera Stephen Miller, guðföður innflytjendastefnunnar, að starfsmannastjóra Hvíta hússins.
Í viðtalinu við 60 mínútur spurði Ross Douthat Trump hvort hann teldi að stefna hans í innflytjendamálum hefði bæði hjálpað og skemmt fyrir.
Trump gaf sér hæstu einkunn fyrir að loka suðurlandamærum Bandaríkjanna og fyrir að reka ofbeldisfulla glæpamenn úr landi. Hann hélt því fram að á undanförnum sautján mánuðum hefði ekki einn innflytjandi farið yfir landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó með ólöglegum hætti.
Þá sagði Trump að það hefði skaðað hann að innflytjendum sem hefðu ekkert gert af sér, eða lítið, og væru í góðri vinnu hefði verið vísað úr landi.
„Ég held að þetta gæti hafa verið of strangt, já,“ sagði Trump þegar hann var spurður beint hvort þetta hefði komið niður á Repúblikönum í nýafstöðnum kosningum. „Þetta skaðaði mig.“
Fyrsta viðtalið eftir afhroð
Viðtalið er það fyrsta sem Trump fór í eftir kosningarnar, þar sem Repúblikanar hlutu afhroð víðs vegar um Bandaríkin. Demókratar stefna á mjög stóran meirihluta í fulltrúadeild Bandaríkjaþings og tiltölulega þægilegan meirihluta í öldungadeildinni.
Þá sigruðu frambjóðendur Demókrataflokksins í ríkjum sem hafa um langt skeið verið meðal helstu víga Repúblikana, eins og Suður-Karólínu og Texas er útlit fyrir að Demókrati muni sigra í öldungadeildarkosningunum í Mississippi.
Kannanir og viðtöl við kjósendur benda til þess að ein helsta ástæða þessa afhroðs Repúblikana sé hvað Trump er óvinsæll.
Í viðtalinu við 60 mínútur hélt Trump því einnig fram að Repúblikanar hefðu tapað kosningunum af nokkrum ástæðum. Meðal annars vegna þess að hann sjálfur hefði ekki verið á kjörseðlunum og vegna þess að Repúblikanar hefðu ekki sannfært kjósendur um kosti stríðsins gegn Íran, svo eitthvað sé nefnt.
Vildi þrjú þúsund handtökur á dag
Áður en hann varð forseti hét Trump því að vísa milljónum manna sem hafa haldið til ólöglega í Bandaríkjunum úr landi. Leggja átti sérstaka áherslu á fólk sem hafði brotið lögin.
Þar sem landamærunum við Mexíkó hafði þó svo gott sem verið lokað var tölfræðin um handtökur og brottvísanir ekki nægilega góð, að mati starfsmanna Trumps og þá helst Stephen Miller, nýs starfsmannastjóra Hvíta hússins.
Miller hefur lengið verið sagður guðfaðir þessarar brottvísanastefnu ríkisstjórnarinnar og hefur hann verið einn nánasti ráðgjafi Trumps um langt skeið.
Sjá einnig: Vilja leggja réttarríkið til hliðar
Um mitt ár í fyrra fór Miller á fund með leiðtogum Innflytjenda- og tollaeftirlits Bandaríkjanna (ICE) og annarra stofnana sem koma að landamæraeftirliti og brottvísunum. Hann er sagður hafa húðskammað þá á þessum fundi og krafið þá um fleiri handtökur og fleiri brottvísanir.
Miller mun hafa skipað þeim að handtaka þrjú þúsund manns á dag, en fyrstu fimm mánuði kjörtímabils Trumps var meðaltalið um 650 handtökur.
Þá sagði Miller umræddum leiðtogum að hætta að einblína á glæpamenn og byrja að handtaka alla sem væru í Bandaríkjunum ólöglega, jafnvel þó að þeir hefðu aldrei brotið af sér. Sérstök áhersla var lögð á borgir þar sem Demókratar halda í stjórnartaumana.
Þá fóru ICE-liðar að sitja fyrir verkamönnum víða um Bandaríkin, sem forsvarsmenn landbúnaðariðnaðarins og verksmiðjuiðnaðar kvörtuðu yfir að hefði komið niður á þeim geirum
Viðtalið var tekið á föstudaginn, sama dag og Trump tilkynnti að Stephen Miller myndi taka við af Susie Wiles sem starfsmannastjóri hans. Sú ákvörðun þykir til marks um að innan ríkisstjórnar Trumps hafi ekki verið tekin ákvörðun um að draga saman seglin í málefnum innflytjenda og farandfólks, heldur halda sömu stefnu og áður eða jafnvel gefa enn frekar í.
Miller vill ekki breyta um stefnu
Eins og fram kemur í grein New York Times hefur Miller sjálfur gefið það til kynna. Eftir kosningarnar hringdi hann í embættismenn og sagði þeim að halda áfram þeirri vinnu að fjölga brottvísunum, stöðva fólk við landamærin og að senda fólk til annarra ríkja en það kemur frá.
Trump sagði að ýmist fólk sem væri „nokkuð langt til hægri“ myndi vilja sjá öllum vísað úr landi. Þar á meðal væri fólk í ríkisstjórn hans.
Hann sagði að samkomulag við Demókrata í þessum málum gæti snúist um það að halda áfram að vísa glæpamönnum, morðingjum og nauðgurum, úr landi en að leyfa fólki sem hefði dvalið lengi í Bandaríkjunum og ekki brotið af sér að vera þar áfram.
Farið var um nokkuð víðan völl í viðtalinu. Þar var einnig talað um stríðið gegn Íran, innrás Rússa í Úkraínu og þann mikla auð sem Trump hefur safnað í embætti.
Áhugasamir geta horft á allt viðtalið við Trump í spilaranum hér að neðan.