Allt þetta ár hefur í fjárlögum verið til staðar heimild fyrir fjármálaráðherra til að selja íbúðarhús, í eigu ríkisins, í Laugarási til yfirlæknis heilsugæslunnar á Flúðum þrátt fyrir að mygla hafi fundist í húsnæðinu. Heimildin kveður á um að sala hússins til læknisins skuli byggjast á óháðu verðmati. Var þessari heimild bætt inn í fjárlögin að beiðni Heilbrigðisstofnunar Suðurlands og heilbrigðisráðuneytisins sem töldu brýnt að leysa húsnæðisvandamál lykilstarfsmanns.
Ríkið ætlaði að selja myglað hús í Laugarási í einkasölu til yfirlæknis