Börn yngri en 15 ára mega ekki hafa sjálfstæðan aðgang að samfélagsmiðlum gangi frumvarp sem Inga Sæland barna- og menntamálaráðherra mælti fyrir í dag í gegn. Aldurstakmarkið miðast við fæðingarár og telst barn hafa náð aldurstakmarkinu frá 1. janúar það ár sem það verður 15 ára. Bannið nær til miðla eins og Facebook, Instagram, Snapchat og TikTok en ekki tölvuleikja þar sem notendur geta átt í samskiptum sín á milli. Forrit eins og WhatsApp og Signal eru heldur ekki talin til samfélagsmiðla. Engar skyldur verða lagðar á sjálfa samfélagsmiðlana heldur er það sett í hendur foreldra og forráðamanna að sjá til þess að banninu verði framfylgt.
Leggur til 15 ára aldurstakmark á samfélagsmiðla