Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn á flugvellinum í New Orleans í Bandaríkjunum eftir að hafa hótað því að vera með sprengju. Maðurinn reyndi að komast inn í flugstjórnarklefa vélarinnar í miðju flugi.Tímaritið People greinir frá þessu.Rony Gomez-Alberto, 34 ára farþegi, var handtekinn á flugvellinum í New Orleans á mánudag, 9. nóvember. Flugmenn vélarinnar höfðu sent út neyðarskilaboð til flugturnsins eftir að hann reyndi að komast inn í flugstjórnarklefann og hótaði áhöfninni að hann væri með sprengju á sér.
Hætta í háloftunum: Farþegi sagðist vera með sprengju og ætlaði inn í flugstjórnarklefann