Sanna Magdalena Mörtudóttir, áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokksins, lagði til að opnað yrði fyrir vatn og rafmagn frá 16. nóvember til 1. apríl. Það átti síðan að koma í hlut menningar- og íþróttaráðs að útfæra hvernig kostnaðurinn yrði greiddur í samráði við íbúana. Fulltrúar Samfylkingarinnar og Miðflokksins sátu hjá við afgreiðsluna.
Í bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknar kom fram að hjólabúum hafi verið gert að rýma hlíðina fyrir 1. nóvember. Meirihlutinn sagði óforsvaranlegt að verja fé í þær úrbætur sem slökkviliðið krefst þar sem uppbygging sé fyrirhuguð á svæðinu.
Sanna gagnrýndi afgreiðsluna og sagði að leita mætti leiða til að mæta kröfum brunavarna í samráði við íbúana. Ákvörðunin um að taka rafmagnið af ógni öryggi íbúa, sérstaklega yfir vetrartímann.
Hjólabúar fluttu á Sævarhöfða árið 2023 eftir að þeim var gert að yfirgefa tjaldsvæðið í Laugardal. Borgarráð sagði upp samningi um aðstöðu fyrir hópinn í Gufunesi, tveimur mánuðum eftir að hann var undirritaður. Lokað var fyrir rafmagn á Sævarhöfða 2. nóvember en Bergþóra Pálsdóttir, talskona Samtaka hjólabúa, sagði að tólf manns byggju enn á svæðinu og hefðu engan annan stað til að fara á.