Í ákæru á hendur manninum, sem þingfest var í Héraðsdómi Reykjaness í dag, segir að hann hafi nauðgað stúlkunni að kvöldi 13. september árið 2024 í íbúð á ótilgreindum stað. Hann hafi tekið hana hálstaki, sett fingur í leggöng hennar og haft við hana samræði án samþykkis og með því að beita hana ofbeldi og ólögmætri nauðung, en hún hafi ekki getað spornað við verknaðinum sökum ölvunar.
Ekki kemur fram í ákærunni hversu gömul stúlkan var þegar atvik málsins urðu en í henni segir að foreldrar hennar leggi fram einkaréttarkröfu upp á þriggja milljóna króna miskabætur fyrir hönd ólögráða dóttur sinnar. Því er ljóst að hún er undir átján ára aldri í dag. Hins vegar er maðurinn ekki ákærður fyrir kynferðisbrot gegn barni og því má leiða líkur að því að hún hafi verið orðin fimmtán ára í september 2024.
Greip um höfuð lögreglumanns
Þá segir í ákærunni að maðurinn sæti ákæru fyrir brot gegn valdstjórninni í tveimur liðum, með því að hafa veist með ofbeldi og hótun um ofbeldi að lögreglumönnum sem voru við skyldustörf.
Í fyrsta lagi hafi hann aðfaranótt 14. september, í íbúð á ótilgreindum stað, sem telja verður líklegt að sé sú sama og fjallað er um hér að framan, gripið um höfuð lögreglumanns og síðan hótað honum og tveimur öðrum lífláti. Af þessu hafi einn lögreglumannanna þriggja hlotið eymsli og roða yfir vinstra eyra og eymsli yfir vinstri kjálkalið.
Kýldi lögreglumann og hótaði öðrum
Í öðru lagi hafi hann á mánudagskvöldi í nóvember 2024, á göngustíg á ótilgreindum stað, kýlt lögreglumann með krepptum hnefa vinstra megin í andlitið þannig að hann vankaðist og datt aftur fyrir sig á lögreglubifhjól, sem við það hafi fallið í jörðina ásamt lögreglumanninum.
Lögreglumaðurinn sem hann kýldi hafi af háttsemi hans hlotið grunnt fleiðusár á vinstra gagnauga, eymsli yfir efri brún vinstra kjálkabeins og eymsli og bólgu í vinstri öxl. Þá hafi maðurinn á sama tíma hótað öðrum lögreglumanni lífláti í tvígang.