Skotárásin átti sér stað inni í líkamsræktarstöð og í nágrenni hennar í bandarísku höfuðborginni. Breska ríkisútvarpið BBC er meðal þeirra sem greina frá. AP-fréttaveitan segir að fimm hafi verið skotnir snemma á fimmtudag að staðartíma í vinsælu hverfi í borginni sem er í göngufæri frá Hvíta húsinu.
AP hefur þetta eftir lögreglu sem var kölluð út á fleiri en einn stað. Að minnsta kosti einn þeirra sem urðu fyrir skoti var staddur í líkamsræktarstöðinni og lést í blóðpolli, að sögn sjónarvotts sem ræddi við AP. Fleiri skothvellir heyrðust úr byggingunni.
BBC segir að lögregla hafi greint frá árásinni rétt fyrir klukkan 8:30 í morgun að staðartíma. Skotárás ætti sér stað á Logan Circle-svæðinu, innan við 1,6 kílómetra norður af Hvíta húsinu. Almenningi er ráðlagt að halda sig fjarri svæðinu.
Klukkustund síðar sagði lögreglan að hinn grunaði hefði lokað sig inni í byggingu við Fimmtánda stræti.
Fulltrúi í borgarstjórn DC sagði að skotárásin hefði átt sér stað á líkamsræktarstöð og eitt vitni sagðist hafa haldið að skothvellirnir væru æfingabolti að springa.
UPDATE: The incident has resulted in a barricade situation in the 1500 block of 15th Street, Northwest. MPD’s Emergency Response Team is on the scene. Please avoid the area as we work to resolve the incident. Updates will come through this platform.
— DC Police Department (@DCPoliceDept) November 12, 2026
Einn í lífshættu
Jeffrey W. Carroll, starfandi lögreglustjóri í Washington DC, sagði á blaðamannafundi að lögreglu hafi borist tilkynning um árásina rétt fyrir klukkan 8 í morgun að staðartíma. Lögregla hafi verið komin á vettvang innan við hálfri mínútu síðar.
Einn hafi látið lífið í skotárásinni. Fjórir aðrir voru skotnir og fluttir á sjúkrahús og einn þeirra í lífshættu. Hann bætti við að lögreglumenn hafi átt í samskiptum við meintan árásarmann þar sem hann hafði lokað sig af á sjöundu hæð í byggingu þegar þeir heyrðu skothljóð. Eftir að þeir brutu sér leið inn í bygginguna hafi þeir fundið manninn með skotsár.
Carroll bætti við að staðan væri „enn óljós“ og að yfirvöld væru að reyna að „tryggja að öll byggingin væri örugg“.
Rannsaka ágreining í fjölbýlishúsinu
Lögreglustjórinn sagði að talið væri að eldur hafi verið kveiktur en tekist hafi að slökkva hann.
Lögreglumenn vinni enn að því að „rýma sjálft rýmið“ í byggingunni þar sem árásin átti sér stað og að yfirvöld telji að hinn grunaði eigi íbúðina.
Carroll sagði að hinn grunaði hafi „skotið í gegnum hurðina á lögreglumenn að minnsta kosti tvisvar á meðan hann var búinn að loka sig inni“.
Hinn grunaði væri hvítur karlmaður og lögreglan hafi hugmynd um hver hann væri.
Lögreglustjórinn bætti við að lögreglan teldi að „einhvers konar ágreiningur hafi verið í fjölbýlishúsinu“ en að rannsókn standi enn yfir.
Fréttin er í vinnslu.