Starfsmenn vonast eftir betri vetri en í fyrra en síðustu mánuði hefur nýtt yfirbyggt Töfrateppi verið sett upp, girðingum verið bætt við og ýmsu viðhaldi sinnt á svæðinu. 5,7 gráðu frost mælist í Bláfjallaskála þessa stundina.
Rekstrarstjóri skíðasvæðanna á höfuðborgarsvæðinu sagði í samtali við Vísi seint í október að stefnt væri að því að opna Bláfjöll fyrir jól.
Skíðasvæðið var opið í 31 dag síðasta vetur og lét snjór ekki sjá sig fyrr en í lok febrúar, að því er fram kemur á vef Bláfjalla og Skálafells.
„Það er náttúrulega einstakt að það komi varla náttúrulegt snjókorn vetrarmánuðina sjálfa, nóvember, desember, janúar og nánast allan febrúar. Og ekki nóg með það, hitastigið þessa mánuði var það hátt að nánast aldrei gaf til snjóframleiðslu. Tvisvar sinnum í vetur, um miðjan desember og um miðjan janúar var nánast búið að framleiða upp allar þær leiðir sem við höfum snjóframleiðslu til en í bæði skiptin brast í hláku og allt skolaði burt.“
Þetta hafi staðfest mikilvægi þess að geta framleitt snjó þegar aðstæður leyfa. Snjóframleiðslukerfið var sett upp í Bláfjöllum árið 2023.