„Stjórn Landsvirkjunar er sjálfstæð stjórn og mér finnst í rauninni hún bera alla ábyrgð á málunum eins og þeim er fyrir komið í dag.“ Þetta sagði Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og barna- og menntamálaráðherra, á Alþingi í dag.
Stjórnarandstaðan þrýstir enn á ríkisstjórnina vegna uppsagnar Harðar Arnarsonar hjá Landsvirkjun og í óundirbúnum fyrirspurnartíma í dag gengu þeir á Ingu.
Ólafur Adolfsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, taldi upp þrjú tilvik þar sem hann taldi að Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hefði sagt ósatt um málið. Í fyrsta lagi þegar hann sagði í viðtali á Bylgjunni að engir formlegir fundir hefðu verið haldnir án Harðar en Daði viðurkenndi síðar að það hefði ekki verið gott og nákvæmt svar. Í öðru lagi hafi Daði sagt í skýrslugjöf á Alþingi að ástæða afsagnar Harðar hefði einungis snúist um stjórnarhætti en minnisblað Harðar frá 15. júní segi aðra sögu. Í þriðja lagi hafi Daði sagt að ráðuneytið hefði lagt fram allar upplýsingar sem málinu tengjast, sem Ólafur segir heldur ekki rétt.
Því næst beindi Ólafur orðum sínum að Ingu. „Því vil ég spyrja ráðherra hvort hún telji almennt ásættanlegt að ráðherra, sama hver hann er eða í hvaða flokki eða hvaða ríkisstjórn hann tilheyrir, segi ítrekað ósatt á Alþingi og í samtölum við fjölmiðla. Telur ráðherra að sá sem sýnir af sér slíka háttsemi eigi erindi í ráðherrastól?“
Inga svaraði því til að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis muni ráðast í ítarlega athugun á málinu og að hún treysti því ferli fullkomlega. Að öðru leyti hafi hún engar forsendur til þess að tjá sig um málið. „Ég hef ekkert meira um málið að segja.“
Stefán Vagn Stefánsson, varaformaður Framsóknarflokksins, rifjaði einnig upp að misvísandi upplýsingar hafi verið gefnar um fund sem Hörður óskaði eftir þann 7. janúar til að fara yfir samskipti Landsvirkjunar og ráðuneytisins. Ekkert varð af þeim fundi en stjórnin fundaði með ráðuneytinu þann 6. janúar.
„Hér liggja því fyrir ólíkar frásagnir sem mikilvægt er að fá skýringar á […] Telur ráðherrann ásættanlegt að þessar ólíku frásagnir standi enn óútskýrðar?“ spurði Stefán Vagn.
Inga ítrekaði fyrra svar sitt um að hún hefði ekki forsendur til að leggja dóm á þetta og að hún treysti stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fyrir verkinu. „Málið er viðkvæmt og óheppilegt og annað sem hefur kannski ekki komið nógu skýrt fram er að stjórn Landsvirkjunar er sjálfstæð stjórn og mér finnst hún í rauninni bera alla ábyrgð á málunum eins og þeim er fyrir komið í dag.“
Í síðara svari ítrekaði Inga að stjórnin væri sjálfstæð í verkum sínum. „Þar kemur fjármálaráðherra hvergi að málum. Hann skiptir sér ekki af dagskrá, hann skiptir sér ekki af fundarboðum, hann skiptir sér ekki af neinu. Þar er alger armslengd á milli.“