Til stóð að lögin myndu taka gildi þann 1. desember 2027 en með frumvarpinu sem lagt verður fyrir þingið á næstu dögum mun það taka gildi þann 1. desember 2027. Fyrst þegar frumvarpið var kynnt stóð til að úrræðið yrði opnað í júní 2026 en tókst ekki að afgreiða frumvarpið á síðasta þingi.
Um er að ræða frumvarp um sérstaka brottfararstöð fyrir útlendinga sem ákveðið hefur að vísa eigi úr landi. Frumvarpið hefur sætt töluverðri gagnrýni en um tíma var óskýrt hvort vista mætti börn í úrræðinu.
„Brottfararstöð og uppbygging hennar er í forgangi hjá dómsmálaráðuneytinu. Eftir að frumvarpið var samþykkt á Alþingi réðst ráðuneytið í umfangsmikla vinnu að finna og undirbúa rétta húsnæðið,“ segir í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.
Gangi samningaviðræður eftir verður brottfararstöðin opnuð að Klettatröð 8 á Ásbrú í Reykjanesbæ.
„Við undirbúning varð ljóst að ekki væri hægt að ljúka öllum nauðsynlegum verkþáttum fyrir fullbúna brottfararstöð áður en lögin tækju gildi. Með því að fresta gildistökunni um eitt ár gefst svigrúm til að vinna áfram að lausn húsnæðismála og undirbúa starfsemina þannig að hún uppfylli öll skilyrði laga.“
Sömuleiðis verður gildistöku breytinga á lögum um útlendinga sem tengjast starfseminni frestað. Einungis einn hluti frumvarpsins mun taka gildi núna 1. desember. Það er ákvæði um að ráðherra setji reglugerð um skimun ríkisborgara þriðju ríkja en það tengist ekki starfsemi brottfarastöðvarinnar.