Landsréttur úrskurðaði manninn í gæsluvarðhald í upphafi mánaðar til þess að koma í veg fyrir að hann kæmi sér undan því að verða framseldur til Írlands vegna evrópskrar handtökuskipunar frá yfirvöldum á Írlandi.
Í úrskurðinum segir að maðurinn hafi komið til Íslands fyrst árið 2006, tveimur árum eftir meinta nauðgun, og hafi dvalið hér samfellt frá árinu 2017.
Grunur um ólögmæta dvöl við komu til landsins
Jón Þór Karlsson, lögregluþjónn hjá landamæradeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að málið hafi hafist eftir að afskipti voru höfð af manninum í Leifsstöð og lögmæti dvalar hans skoðað.
„Við þessa skoðun kemur einnig í ljós í okkar kerfum að hann er skráður sem ríkisborgari Króatíu og þegar verið er að skoða málið frekar þá virðist vera sem svo að króatíska vegabréfið, sem hann framvísaði fyrir hartnær tíu árum, hafi verið falsað til þess að fá kennitölu á Íslandi. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fær svo málið til afgreiðslu og tekur fingraför og myndir. Það er sent í gagnagrunn Interpol og í kjölfarið kemur í ljós eftirlýsing á Írlandi frá 2004 vegna kynferðisbrots.“
Brot hér til skoðunar en líklega ljúki málinu með framsali
Nú hafi maðurinn verið úrskurðaður í gæsluvarðhald og verið sé að skoða málið frá öllum hliðum. Hann hafi til að mynda unnið hér á landi og þegið félagslegar bætur. Þá hafi einnig komið í ljós að hann hafi skipt um nafn í Serbíu og því sé mögulega slóð eftir manninn sem þurfi að rannsaka betur.
Þannig sé til skoðunar að framselja manninn til Írlands en einnig gætu brot hans hér á landi haft eftirmál.
„Þetta verður allt skoðað og rannsakað til hlítar. Við búumst frekar við því að hann verði framseldur. Það er viðbúið og þá verður það bara klárað en okkar mál eru einnig til skoðunar.“
Ekki svo óalgengt
Er þetta algengt, að menn séu hér svona lengi í ólögmætri dvöl og svo komist upp um þá áratug síðar?
„Því miður er þetta dálítið að poppa upp hjá okkur, að þriðjaríkisborgarar séu hér í ólögmætri dvöl og hafi þá komið inn á fölskum forsendum sem EES-borgarar og unnið, jafnvel þegið bætur og verið hér í alls konar starfsemi. Því miður, þetta er reglulega að koma upp.“