Harmageddon
Til er fólk sem telur að fjölmiðlastyrkur stjórnvalda eigi eingöngu að ná til þeirra miðla sem ganga í takt við ákveðnar meginstraumslínur í umdeildum málum. Fjölmiðlar sem styðja ekki ákveðnar rétttrúnaðarstefnur skuli þannig fjársveltir á meðan þeir sem kyrja kórinn verði í áskrift að fjármagni skattgreiðenda. Slík sjónarmið eru í reynd sterkustu rökin fyrir því hvers vegna fjölmiðlar ættu aldrei að vera ríkisstyrktir. Við getum aldrei vitað hvers lags fólk mun koma til með að stjórna sameiginlegum sjóðum til framtíðar.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/