Ríkið stefnir á að skerða framlög til sóknaráætlana og atvinnuþróunar á vegum landshlutasamtaka sveitarfélaga. Framlögin hafa sveitarfélögin nýtt í atvinnuuppbyggingu og nýsköpun og að mati Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, SSNV, hafa framlögin skilað sér margfalt til baka í formi fjölbreyttara atvinnulífs, betri þjónustu og skilvirkari nýtingu á opinberu fjármagni.
Magnús Magnússon, formaður stjórnar SSNV, segir heildarskerðingu ríkisins hlaupa á hundruðum milljóna.
„Þetta er svona þróunaraðstoð við landsbyggðina má segja. Þarna er verið að skerða hana til muna. Við erum með samning um sóknaráætlun Norðurlands vestra og það er fimm ára samningur við hið opinbera. Hann tengist inn í þrjú ráðuneyti. Þarna erum við úti í miðri á á hestinum og hestinum er kippt undan knapanum. Við erum ekki komin nærri landi,“ segir Magnús.
Lækkar skatttekjur
Nú þegar er sótt um þrefalt á við það sem er til úthlutunar.
„Bæði verða færri fyrirtæki til og fyrirtæki sem eru komin örlítið af stað með sína starfsemi eða verkefni verða að halda að sér höndum. Þetta minnkar um leið skatttekjur hins opinbera,“ segir Magnús.