ÁTVR hefur ákveðið að hætta framleiðslu neftóbakshorna og munu þau því brátt hverfa af markaði. Gert er ráð fyrir að síðustu birgðirnar klárist í nóvember.Þetta kemur fram í tilkynningu frá ÁTVR en þar segir að ákvörðunin sé tekin í ljósi þess að sala neftóbaks hafi dregist verulega saman undanfarin ár.Neftóbakshornin komu fyrst á markað árið 1992 og hafa því verið í sölu í 34 ár. Íslenskt neftóbak á sér þó mun lengri sögu en það hefur verið selt frá árinu 1941, meðal annars í dósum og krukkum.
ÁTVR kveður neftóbakshornin – Löng saga senn á enda