Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur ákært mann sem búsettur er í miðborg Reykjavíkur fyrir kynferðisbrot, en maðurinn hafði mikið barnaníðsefni undir höndum er lögregla gerði húsleit hjá honum þann 28. mars árið 2023. Fundust þar 7225 ljósmyndir og 33 myndbönd sem sýna börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Ákærði geymdi myndefnið í tölvuturni og hörðum diskum en tækin voru haldlögð við húsleit lögreglu. Málið er rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og var fyrirtaka síðastliðinn þriðjudag.
Fundu barnaníðsefni í þúsundavís við húsleit hjá manni í Reykjavík