Vísir fjallaði um mál mannsins í september eftir að fyrri gæsluvarðhaldsúrskurður yfir honum var birtur. Í honum segir meðal annars að í greinargerð Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra sé atvikum málsins lýst sem svo að rannsókn þess hafi hafist aðfaranótt laugardagsins 29. ágúst. Það hafi fyrst komið inn á borð lögreglu vegna sjálfsvígstilraunar mannsins.
Þegar lögreglan kom á vettvang hafi konan farið að tjá sig um áralangt ofbeldi sem hún hefði búið við síðan samband þeirra hófst.
„Hún lýsir miklu líkamlegu ofbeldi, kynferðislegu ofbeldi og stjórnun og kúgun. Hún lýsir því að sakborningur hafi ítrekað tekið hana hálstaki, stungið hana með hníf í bakið, lagt hafnaboltakylfu að hálsi hennar og ítrekað neytt hana til kynlífs með ofbeldi og án hennar samþykkis,“ segir þar meðal annars.
Ekki haldinn alvarlegum geðsjúkdómi
Í nýjasta úrskurði málsins, sem kveðinn var upp í Héraðsdómi Norðurlands eystra þann 6. nóvember og staðfestur í Landsrétti í gær, segir að sjúkragögn sem varða manninn hafi borist og séu nú orðin hluti af gögnum málsins.
Í sjúkragögnunum sé fjallað um innlögn hans á geðdeild, sem hafi verið undanfari þessa máls.
„Í þeim gögnum kemur fram að niðurstaða geðlækna á geðdeildinni er sú að sakborningur sé ekki haldinn alvarlegum geðsjúkdómi, heldur áráttu- og þráhyggjuröskun. Það kemur einnig fram í þessum gögnum að þegar sakborningur var lagður inn vegna meintrar sjálfsvígstilraunar með lyfjainntöku mældist aðeins áfengi og parasetamól í blóð- og þvagsýni sem tekið var úr honum við komu á spítalann. Sakborningur virðist því hafa logið að konu sinni um lyfjainntökuna sem leiddi til þess að hann var innlagður á geðdeild. Samkvæmt þessu hefur hann ekki tekið inn nein lyf.“
Þriðji verjandinn tekinn við
Þá segir að þann 29. október hafi verið tekin skýrsla af manninum hjá lögreglu og sú hafi verið þriðja skýrslan sem tekin var af honum og sú fyrsta eftir að hann skipti um verjanda í þriðja skiptið.
„Í þeirri skýrslu dró hann báða framburði sína til baka og sagðist aldrei hafa beitt brotaþola ofbeldi. Sem skýringu á fyrri framburðum sínum um ofbeldi gegn brotaþola nefnir sakborningur að hann hljóti að hafa enn verið undir áhrifum lyfjanna sem hann tók þegar hann gerði þessa meintu sjálfsvígstilraun. Eins og áður hefur verið nefnt og með vísun til framlagðra sjúkragagna virðist sakborningur ekki hafa verið undir öðrum áhrifum við komu á sjúkrahúsið en áfengi.“
Í niðurstöðukafla úrskurðarins segir að fyrri játningar mannsins hafi verið taldar eiga sér fullnægjandi stoð í gögnum málsins og dómurinn meti það sem svo að þær geri það enn, þrátt fyrir að hann hafi dregið þær til baka.
Sterkur grunur sé enn um að maðurinn hafi framið brot þau sem hann er sakaður um og því séu forsendur til að úrskurða hann í áframhaldandi gæsluvarðhald til 4. desember.