Forvarnir, ráðgjöf og stuðningur við þolendur eru mikilvæg skref í baráttunni við kynferðisofbeldi gegn börnum. Þetta var viðfangsefni Kveiks í gærkvöld.
Kynferðisofbeldi færist stöðugt í aukana, sérstaklega í gegnum netið, og aldrei hefur verið auðveldara að komast að börnum.
Börn beitt tælingu og ofbeldi
Börn eru í auknum mæli beitt tælingu, kynferðislegu ofbeldi og fjárkúgun á samfélagsmiðlum segir Indíana Rós Ægisdóttir, kynfræðingur og verkefnastýra Jafnréttisskólans hjá Reykjavíkurborg.
„Það er kannski verið að spjalla við einhvern ungling, þykjast vera jafnaldrar og eitthvað svona voða sætur einstaklingur. Biður kannski um einhverjar kynferðislegar myndir. Svo bara um leið og myndin er komin hefst fjárhagslega kúgunin eða annars konar hótanir.“
Indíana segir mikilvægt að foreldrar ræði við börn sín, í forvarnarskyni, um hættur sem fylgja samfélagsmiðla- og netnotkun.
Í því samtali eigi ekki að banna börnum eða unglingum heldur láta þau vita að þau geti leitað til foreldra geri þau mistök í samskiptum.
„Við viljum að samtalið sé þannig að þó að þau ruglist og misstígi sig og geri kannski eitthvað sem þau hefðu ekki átt að gera geti þau komið og talað við okkur um það.“
Indíana segir að varast eigi að koma inn hjá börnum og unglingum skömm eða hræðslu við að segja frá því sem kemur fyrir þau.
„Þetta er ekkert sem börn ættu að þurfa að eiga við alein.“
Hún segir að aðgangur að klámi og ofbeldi á samfélagsmiðlum sé mikill og auðvelt að lenda á slíku efni.
Veita þurfi börnum og ungmennum kynfræðslu og miðlalæsi í meira mæli en nú er gert.
Ofbeldi minnkar ekki með nýjum kynslóðum
Stígamót hafa veitt þolendum kynbundins og kynferðislegs ofbeldis ráðgjöf og stuðning í 36 ár. Drífa Snædal er talskona þeirra.
Brotaþolar eldri en 18 ára geta leitað til Stígamóta. Samtökin gefa einnig kost á netspjalli á vefsíðunni www.sjukast.is og stuðningshópa.
Hefurðu orðið vör við breytingar á skjólstæðingum ykkar eða starfi undanfarin ár?
„Við verðum vör við breytingar með tilkomu internetsins, klámvæðingar og auknu aðgengi að börnum í gegnum netið.“
Drífa segir mikilvægt að hafa í huga að stafrænt ofbeldi geti haft jafn miklar afleiðingar og ofbeldi í raunheimum.
„Það lítur þannig út frá okkar bæjardyrum séð að ofbeldi sé ekki endilega að minnka með nýjum kynslóðum. Síðan er rosalega mikilvægt að hafa í huga ofbeldi á netinu, þó að þú hittir aldrei viðkomandi en þú ert kannski plötuð í að senda myndir eða eitthvað slíkt.“
Hvað er hægt að gera?
„Það sem er mjög mikilvægt að gera er að einbeita sér að forvörnum, koma í veg fyrir ofbeldi.“
Besta leiðin til þess er að setjast niður með ungu fólki, segir Drífa. Hún hvetur þá sem þurfa aðstoð til að leita til Stígamóta.
„Ekki smætta eigin vanlíðan í kjölfar ofbeldis. Endilega leitaðu þér aðstoðar.“