Donald – „halta öndin“

Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:
Frá því á miðvikudagsmorguninn 3. nóvember hafa fagnaðarópar danskra fjölmiðla stigið til himna í alsælu yfir því að hinn illi forseti, Donald Trump, hafi nú verið rekinn frá völdum af bandarísku þjóðinni.
Allt árið hefur pressan baðað sig í tilhlökkun yfir þeirri tilhugsun að Trump myndi ljúka síðara kjörtímabili sínu sem svokölluð „lame duck“ – hölt önd, það er að segja forseti sem getur ekki haldið áfram með ólöglegt stríð sitt gegn Íran, laumulega innlimun Grænlands og bræðralag sitt við Pútín forseta, þar sem þingið stendur gegn honum.
Þann 3. nóvember varð óskin að veruleika. Repúblikanar misstu meirihlutann í báðum deildum Bandaríkjaþings þegar kosningaflóðbylgja demókrata gekk yfir landið.
Hlutabréf hækkuðu- aftur niður
Þegar úrslit kosninganna lágu fyrir hækkuðu hlutabréf í bandarískum kauphöllum verulega, eins og stórfjármagninu væri einnig fagnaðarefni að harðstjórinn væri fallinn. Vímuástandið entist þó aðeins í einn sólarhring, áður en fjárfestar höfðu náð áttum og sendu hlutabréfaverðið í sögulegt hrun.
Danskir fjölmiðlar voru þó þegar búnir að finna skýringu. Niðursveifluna mætti auðvitað rekja til Trumps, sem hefði lagt allt undir í von um hraða þróun og útbreiðslu gervigreindar (AI), með orkufrekum gagnaverum sem eru ekki að skapi demókrata, en þeir kjósa fremur græn umskipti yfir í sólar- og vindorku.
Sú skýring stenst hins vegar ekki. Vissulega urðu gervigreindarfyrirtækin fyrir þyngsta högginu í kauphöllunum þegar skammvinnri uppsveiflu lauk og frjálst fall tók við. Hlutabréfahrunið einskorðaðist þó ekki við svokölluð tæknifyrirtæki, heldur náði það til alls bandaríska hlutabréfamarkaðarins í öllum þremur helstu hlutabréfavísitölunum: Dow Jones, Standard & Poor’s og Nasdaq.
Lífeyrissparnaður
Bandaríkjamenn eiga yfirleitt lífeyrissparnað sinn í hlutabréfum og þegar hlutabréfamarkaðurinn hrynur geta launþegar tapað stórum hluta sparnaðar síns. Niðursveiflan náði nánast til allra skráðra fyrirtækja í framleiðslu, verslun og þjónustu, allt frá Coca-Cola yfir til Amazon og Walmart
Þetta gerðist auðvitað vegna þess að markaðurinn varð að horfast í augu við að þingkosningarnar höfðu sleppt anda Obama og Biden úr flöskunni. Framtíðarstjórn Bandaríkjanna yrði í höndum Demókrataflokks sem hvorki hefði forystu né umbótaáætlanir til að bæta lífskjör vinnandi fólks.
Bandaríkin eru nú á leið aftur til samfélags sem einkennist af gyðingahatri, kjarnorkuvopnavæðingu Írans, kuldalegri afstöðu til Ísraels og samfélaga súnní-múslima. Við fáum heimild til fóstureyðinga allt fram að fæðingu, lokun olíu- og gasframleiðslu, skurðaðgerðir til kynleiðréttingar á börnum og lögleiðingu ólöglegrar innflytjendasetu.
Auðgunarbrot verða refsilaus og ekki lengur talin glæpur, heldur félagsleg hugsmíð sem rekja megi til mismununar, kúgunar og skorts á inngildingu.
Hlutabréfahrunið stafaði því hvorki af Trump né gervigreindinni, heldur eingöngu af því að hlutabréfamarkaðurinn hafði séð fyrir hvað biði þegar nýja þingið kæmi saman eftir áramót.
Halta öndin
Þegar stórsigur demókrata varð staðreynd var Trump sem „lame duck“ – hölt önd – úthrópaður af húsþökum danskra fjölmiðla í miklli sigurvímu. Þegar Barack Obama forseti varð fyrir sambærilegum stórfelldum ósigri í þingkosningunum árið 2014, þar sem demókratar misstu minnihlutastöðu sína í báðum deildum þingsins, heyrðist ekki eitt einasta kvak í dönsku pressunni um Obama sem halta önd
Það er jú munur á mönnum. Í Danmörku var Barack Obama hylltur sem það næsta sem við kæmumst endurkomu Jesú Krists. Messías getur auðvitað ekki verið hölt önd og í dönskum fjölmiðlum gat Obama haldið áfram að vera eins konar forsetalegur lukkupiltur, hafinn yfir gagnrýni og efasemdir og tilbeðin af allri þjóðinni.
Við munum ekki sjá Trump forseta sem „lame duck“, frekar en Obama var það síðustu tvö ár sín í embætti. „Svo lengi sem ég hef síma og penna er það ég sem ræður,“ sagði Obama, og hann hafði jú rétt fyrir sér.
Getur sett þinginu skorður
Vissulega getur þing þar sem demókratar ráða ferðinni gert Trump lífið erfiðara, ekki síst þegar kemur að fjárveitingum og fjárlögum alríkisins. En forsetinn hefur vald til að beita neitunarvaldi gegn fjölbreyttum lagafrumvörpum og fer jafnframt með heimild til að gefa út forsetatilskipanir án aðkomu þingsins. Þetta á meðal annars við um utanríkismál og varnarmál.
Enginn vafi leikur á því að Trump mun á næstu tveimur árum nýta þau völd sem honum hann hefur tiltæk til að hrinda í framkvæmd verkefnum sem gætu tryggt honum sess í sögunni sem einum af stórum forsetum Bandaríkjanna, í sama flokki og Roosevelt og Reagan
Því getur hann enn náð, en til þess þarf hann að leysa þrjú stór verkefni.
Verkefnin þrjú
Trump þarf að brjóta kóranræðisstjórnina í Íran á bak aftur og knýja fram stjórnarskipti. Það yrði hernaðarlegt og pólitískt meistaraverk sem myndi tryggja varanlegan frið og samstarf í Mið-Austurlöndum.
Trump þarf að ljúka verkinu á Gaza, þar sem tryggja þarf Palestínumönnum öruggt og friðsælt líf með afvopnuðu Hamas og öryggistryggingum frá Ísrael
Loks getur Trump tryggt sér sess meðal allra fremstu forseta sögunnar ef honum tekst að koma á friði í Úkraínustríðinu með þeim hætti að bæði Rússland og Úkraína geti sætt sig við niðurstöðuna.
Þetta er þungur róður. Sigursælir demókratar eru helteknir af hefndarþorsta og munu gera forsetanum Trump lífið eins erfitt og þeim er unnt. Þeir hafa undirbúið fjölda dómsmála gegn Trump, fjölskyldu hans og nokkrum ráðherrum hans.
„Lawyer Up!“ – eða „Útvegið ykkur lögmann!“ – eru hótunarorðin sem Robert Garcia, væntanlegur formaður eftirlitsnefndar fulltrúadeildarinnar, lætur falla.
Óvíst er hvort Trump tekst að leysa þessi þrjú örlagaríku verkefni á næstu tveimur árum. Margt má segja um Trump, en sama hversu mikið Danir líta á hann sem halta önd munum við á næstunni upplifa forsetann sem baráttuglaðan hana sem berst til síðasta blóðdropa til þess að komandi kynslóðir muni minnast hans sem eins af mestu forsetum Bandaríkjanna.
Asger Aamund: DONALD LAME DUCK – Asger Aamund