Frá 25. ágúst hafa tveir af þremur inniklefum Sundhallar Reykjavíkur verið lokaðir. Framkvæmdir eru í gangi í bæði karla- og kvennaklefanum og hafa karlarnir því notast við gamla búningsherbergi laugarinnar og konurnar báða útiklefana.
Hámarksfjöldi gesta hefur verið sextíu og framkvæmdirnar því haft mikil áhrif á gesti laugarinnar. En nú sér fyrir endann á þeim, segir Kristjana Birgisdóttir hjá Reykjavíkurborg.
„Stefnt er á að afhenda kvennaklefann öðru hvoru megin við helgina,“ segir Kristjana.
Rakaskemmdir fundust í klefanum og hafa framkvæmdirnar verið umfangsmeiri en gert var ráð fyrir upphaflega. Þá er lengra í opnun karlaklefans þar sem hann er friðaður og því töluvert flóknari framkvæmd.