Hringvegurinn er ófær milli Djúpavogs og Hafnar, vegna mikils hvassviðris. Gul viðvörun er í gildi vegna norðvestan storms á Austfjörðum og Suðausturlandi.
Hviður mælast nærri fimmtíu metrar á sekúndu við Hamarsfjörð. Víða er hálka eða hálkublettir á vegum austan og norðaustantil á landinu og rétt að vegfarendur fari með gát, þar sem er hvasst og hált.