Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hyggst setja ný lög innan aðildarríkja sem tryggja eiga vernd neytenda gegn ávanabindandi efni á netinu og netverslunum sem rukka hærra verð en auglýst var í upphafi.
Þá gætu lögin, ef þau verða að veruleika, náð yfir kostað efni áhrifavalda. Efni áhrifavalda getur verið duldar auglýsingar sem neytendur átta sig ekki á að séu auglýsingar og því eiga nýju lögin að taka á.
Ekki er ýkja langt síðan ESB innleiddi löggjöf, sem gjarnan er vísað til með skammstöfuninni DSA (Digital Services Act), sem tekur á ýmsu er varðar gervigreind og rétt notenda á internetinu. Þau lög hafa þó ekki verið óumdeild.
Embættismenn í Brussel vilja þó bæta um betur og stoppa í göt sem þeir telja vera í löggjöfinni og snúa sérstaklega að neytendavernd.
Lögin eiga meðal annars að koma í veg fyrir að netverslanir teymi neytendur áfram til þess að kaupa eitthvað sem þeir ætluðu sér ekki að gera, eða samþykkja skilyrði við kaup sem þeim voru ekki kynnt. Einnig eiga lögin að gera neytendum kleift að slökkva á birtingu ávanabindandi efnis, eins og að afspilun myndbanda hefjist sjálfvirkt eða þá að hægt sé að skruna takmarkalaust í gegnum efnisveitur. Þá næðu þau til kostunar auglýsinga meðal áhrifavalda. Sömuleiðis yrði lagt bann við að ólögráða notendum sé boðið að reiða pening af hendi til þess að fá aukinn aðgang að efni innan leikja eða annarra smáforrita. Loks myndu neytendur öðlast rétt til þess að fá að ræða við mennska þjónustufulltrúa kjósi þeir svo, ekki bara gervigreindarspjallmenni eins og tíðkast æ víðar.
Framkvæmdastjórnin kynnti nýju löggjöfina til leiks sem lög um sanngirni fyrir notendur á netinu, eða Digital Fairness Act á ensku. Samkvæmt þeim gætu eftirlitsaðilar framkvæmdastjórnarinnar sektað fyrirtæki um allt að 6% af ársveltu í alvarlegustu tilvikunum.
Ráðamenn í Brussel segja að neytendur geti sparað um 13,7 milljarða evra, andvirði tæplega 1.900 milljarða króna, á ári.
„Þegar heimili eru undir stöðugum þrýstingi vegna lífskjaraskerðingar verða neytendur að geta treyst því, að verð sem þeir sjá séu verðin sem þeir borga, og að blekkingum sé ekki beitt til þess að þeir inni meira fé af hendi en þeir ætluðu,“ segir neytendamálastjóri ESB, Michael McGrath, í yfirlýsingu.