Árið 2023 ákvað grænlenska þingið að færa landið úr tímabeltinu UTC-3 í UTC-2 svo minni munur væri á klukkunni þar og í Evrópu. Sú breyting var í kjölfar lagabreytingar sem Evrópuþingið samþykkti árið 2019 sem gerir hverju landi heimilt að ákveða hvort það vilji hafa sumar- og vetrartíma eða ekki.
Nú hefur þingið samþykkt að breyta tímabeltinu aftur í UT-3. Breytingin tekur gildi í október á næsta ári og verður þá tímamismunurinn á Grænlandi og Íslandi þrjár klukkustundir í stað tveggja. Danska ríkisútvarpið greinir frá.
Í vor lögðu stjórnarandstöðuflokkarnir Naleraq og Siumut fram tvö frumvörp um að afnema sumartímann, og því ekki breyta klukkunum tvisvar á ári, og að snúa aftur í UTC-3 tímabeltið. Meirihlutinn lagðist þá gegn því að skipta um tímabelti en virtist hlynntur því að afnema sumartímann.
Nú hefur meirihlutinn skipt um skoðun, samþykkt að skipta um tímabelti en hefur skilið það eftir í lausu lofti hvort sumartíminn verði afnuminn.