Zohran Mamdani, borgarstjóri New York, segist verulega uggandi yfir fregnum um að framkvæmdir hafi haldið áfram nærri húsi sem hrundi í Brooklyn-hverfi borgarinnar í dag, þrátt fyrir viðvaranir um hættuástand.
Minnst átta létust þegar þriggja hæða húsið hrundi, þar af tvö börn. Fjöldi annarra er slasaður.
Skýrslur sýna hvernig sprungur höfðu þegar myndast á norðurvegg hússins en þrátt fyrir það héldu byggingaverktakar áfram að grafa fyrir húsgrunni á lóðinni við hliðina.
Mamdani segir að að borgaryfirvöld ætli að rannsaka málið til hlítar og skila ábyrgðinni þangað sem hún eigi heima.
Um 250 slökkviliðsmenn þustu að byggingunni eftir að hún hrundi í nótt. Leitarhundar hafa fundið bæði lífs og liðna í rústum hússins í dag.
Bygging til hliðar við þá sem hrundi varð einnig fyrir miklum skemmdum. Veggir hennar losnuðu frá húsbyggingunni og hrundu með þeim afleiðingum að opið er inn á stigagang og nokkur herbergi.
„Mér verður flökurt,“ segir sextug hjúkrunarkona, sem býr steinsnar frá byggingunni sem hrundi, við AFP.
„Ég get ekki ímyndað mér að standa bara í eldhúsinu, eitthvað að brasa, og svo skyndilega er maður hvergi.“
Ahmed Tigani, byggingafulltrúi í New York, sagði á blaðamannafundi í dag að verktakar hefðu fengið samþykktar teikningar að þriggja hæða húsi en væru enn að reyna að fá samþykki fyrir níu hæða nýbyggingu.
Skjöl sem fréttamenn AFP rýndu sýna að verktakanum var gert að stöðva framkvæmdir í apríl vegna hættuástands á byggingarsvæðinu. Vinna hélt þó áfram og var verktakinn sektaður um 10 þúsund dollara.