Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. Þar segir að maðurinn sé erlendur ríkisborgari og hafi verið vistaður í gæsluvarðhald til 9. desember á grundvelli almannahagsmuna. Hann var handtekinn í Rúmeníu og framseldur til Íslands.
Það sé í þágu rannsóknar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á innflutningi á 106 kílóum af kókaíni til Íslands síðasta sumar. Það er svokallaða Straumsvíkurmálið þar sem núna tíu menn sæta grun um að hafa flutt kókaínið í sjókistu í skipi. Þingfesting vegna ákæru á hendur níu mannanna var í byrjun október og neituðu þeir allir sök.
Maðurinn er sá tíundi sem sætir gæsluvarðahaldi í málinu en hinir níu, þrír Íslendingar og sex erlendir ríkisborgarar, eru enn í haldi. Aðalmeðferð í máli þeirra hefst í desember.