Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að tryggingafélagið VÍS beri óskerta bótaskyldu vegna slyss þar sem ekið var á mann á rafhlaupahjóli í Reykjavík.Málið vakti sérstaka athygli vegna þess að búið var að breyta hjólinu þannig að það gat náð allt að 47,2 kílómetra hraða á klukkustund.Slysið varð í júní 2022 þegar maðurinn var á leið til vinnu á rafhlaupahjóli. Bifreið var ekið á hann þar sem hann fór yfir gönguþverun við Hringbraut. Maðurinn missti meðvitund og hlaut nokkra áverka.
Varð fyrir bíl og rotaðist á rafhlaupahjóli – VÍS gerði athugasemd við breytingu á hjólinu