Kom þetta fram í ræðu Seans Duffy samgönguráðherra Bandaríkjanna en hann sagði bandarísk stjórnvöld ekki telja að um netárás hafi verið að ræða, þótt rannsókn standi enn yfir, er fram kemur í frétt breska ríkisútvarpsins um málið.
Sjá einnig: Flugu af stað um leið og flugbanni var aflétt
Stöðvunin í gær var sú lengsta sinnar tegundar frá árásunum á Bandaríkin 11. september 2001 og búist er við að röskunin vari dögum saman en Duffy tók fram á fundinum að það hafi verið verktakinn L3Harris, sem er tæknifyrirtæki, sem hafi unnið að viðhaldi á fjarskiptakerfi sem sé „ótrúlega gamalt“.
„Vírinn var svo gamall að það var verið að hætta notkun hans,“ er haft eftir honum í frétt BBC en þar segir einnig að hann hafi útskýrt frekar að beinir sem verið var að vinna í hefði byrjað að hafa áhrif á önnur flugumferðarstjórnarkerfi og valdið fjarskiptavandamálum, sem varð til þess að stjórnvöld lokuðu lofthelginni af öryggisástæðum.
Í frétt BBC kemur einnig fram að Bryan Bedford, forstjóri Flugmálastjórnar Bandaríkjanna (FAA), hafi á sama blaðamannafundi sagt:
„Við sjáum engin merki um neitt illgjarnt og engin merki um neitt sem tengist gervigreind.“
Þegar fæstar flugvélar voru á lofti í nótt vegna flugbanns í Bandaríkjunum voru aðeins 336 vélar á lofti yfir Bandaríkjunum. Á vef Flightradar segir að venjulegur fjöldi á þeim tíma sé um 3.600 flugferðir.