Dóttir Thelmu er ellefu ára og var að renna sér í brekkunni í fyrsta sinn. Stuttu fyrir slysið höfðu foreldrarnir heyrt í henni og hún þá sagt þeim að þær vinkonurnar færu brátt heim.
„Eldri dóttir mín var að renna sér með vinkonum sínum tveimur. Þetta er brekka sem hún hefur ekki verið að renna sér í áður. Á sama tíma eru þarna tveir strákar sem eru fæddir sama ár eða einu ári eldri og eru að ýta þeim niður brekkuna,“ segir Thelma.
Í eitt skiptið hafi sleðinn snúist við. Vinkona dóttur hennar hafi náð að henda sér af sleðanum en dóttir Thelmu runnið alla leið niður öfugt og því ekkert séð hvert hún var að fara.
„Hún skellur svo á þessum járnklumpi með bakið. Ef þetta hefði verið aðeins ofar hefði það verið mænan,“ segir Thelma áhyggjufull. Hún hafi í hádeginu í dag farið að skoða aðstæður og séð að lokið er illa grafið niður og skapi þannig hættu.
Skríður um heima
Thelma segir dóttir sína ekki hafa getað gengið eftir að hún lenti á lokinu og og pabbi hennar því farið að sækja hana og keyrt hana heim. Þegar þau voru komin heim hafi hún fljótlega séð að meiðslin væru alvarleg og þau hringt á sjúkrabíl. Hún hafi verið flutt á slysadeild og læknir skoðað hana og metið sem svo að líklega væri um brot og mar að ræða.
„Hún er með verki, en ekkert sérlega kvalin. Hún getur ekki mikið gengið“ segir Thelma og að búist sé við því að hún verði frá skóla í að minnsta kosti viku og frá fimleikum í fjórar til sex. Þetta séu því nokkuð alvarleg meiðsli.
Thelma var ekki á staðnum en heyrði frá annarri móður sem var á staðnum að mögulega hafi verið eitthvað farið yfir mörk í leik strákanna og stelpnanna. Hegðun strákanna hafi ekki endilega verið til fyrirmyndar. Hún segist mjög vilja ræða við foreldra þeirra. Hún viti ekki hver þau eru en hvetur þau til að hafa samband við sig. Strákarnir hafi þrátt fyrir hegðun sína verið áhyggjufullir þegar hún slasaðist og vinkonur hennar líka og hún vilji því ræða við foreldra þeirra.
„Það gekk eitthvað á og var farið yfir mörk í leik,“ segir hún og að vinkonur hennar hafi farið grátandi heim eftir slysið.
Hvetur foreldra til að ræða við börn
Hún hvetur foreldra til að ræða við börn sín um bæði hegðun í sleðabrekku og öryggisatriði. Börn séu sjaldan með hjálm og hún vilji helst ekki hugsa um það hvað hefði gerst hefði dóttir hennar lent öðruvísi á lokinu og höfuðið skollið í.
Þá vonar hún líka að hægt verði að gera einhverjar ráðstafanir í brekkunni til að koma í vef fyrir að fleiri börn renni á lokið sem er úr járni. Brekkan sé vinsæl og þó svo að einhver lýsing sé á svæðinu sjáist lokið ekki vel. Mörg börn séu á lágum sleðum sem auðvelt sé að renna á þetta lok. Hún hefur tilkynnt bæjaryfirvöldum um aðstæður og vona að hægt verði að girða lokið af.
Strákarnir áhyggjufullir
Í Facebook-hópnum Mosó – bærinn okkar var fjallað um slysið í gærkvöldi.
„Það voru tvær stelpur að renna sér og tveir strákar að ýta þeim sem endaði þannig að stelpurnar fara á miklum hraða aftur á bak niður stall og önnur stelpan slasast alvarlega.
Strákarnir sögðust vera fæddir 2015 og 2016 og annar þeirra var trúlega með litla systur með sér. Þeir gætu verið áhyggjufullir þar sem annar þeirra bauðst til að hringja á neyðarlínuna. Það væri því gott að ná tali af þeim og foreldrum þeirra.”