Lögregla handtók þrjá kínverska ríkisborgara á veitingastað sem býður upp á asíska matseld á Geirsgötu í Reykjavík á fimmtudaginn. Lögregla hefur til skoðunar hvort tilefni sé til að vísa tveimur þeirra af landi brott. Ákvörðunin sé ávallt í höndum Útlendingastofnunar. Sá þriðji er með ríkari tengsl við landið og sætir því ekki slíkri skoðun.
Einn þeirra reyndi að flýja út um bakdyr veitingastaðarins er lögreglu bar að garði en komst ekki langt.
Þetta staðfestir Jón Þór Karlsson lögreglufulltrúi. Hann segir einstaklingana alla vera með dvalarleyfi í Evrópu en ekki hafa verið með tilskilin leyfi sem leiðsögumenn, líkt og þeir gáfu sig út fyrir að vera. Með þeim var hópur erlendra ríkisborgara sem var á ferðalagi um Ísland.
Veitingastaðurinn ekki til sérstakrar rannsóknar
Fréttastofu barst ábending um að gestum hafi verið vísað út og staðnum lokað. Jón Þór kvaðst ekki hafa upplýsingar um það.
Hann segir einstaklingana þrjá hafa verið að aðstoða við matseld á veitingastaðnum. Lögregla hafi þó lítið í hendi hvað aðkomu hans varðar. Ábyrgðaraðili veitingastaðarins hafi verið kallaður til skýrslutöku en ekki verið handtekinn. Veitingastaðurinn sæti ekki sérstakri rannsókn.
Spurður hvort tilfelli sem þessi séu að færast í aukana segir Jón Þór lögreglu allavega vera farna að veita þeim meiri athygli og reyni að sporna við því að fólk starfi sem leiðsögumenn í leyfisleysi. Hann viti til sambærilegra tilfella sem hafi komið upp nýlega.
Það sé ekki einn tiltekinn hópur sem stundi slíkt og allur gangur á því hvar einstaklingarnir séu með ríkisfang.