Nú hefur öllum gjöfunum verið komið kyrfilega fyrir í gámum sem verða svo sendir til Úkraínu í tæka tíð fyrir jól. Ein þeirra sem taka frá tíma á hverju ári til þess að sinna verkefninu ásamt fjölskyldu og vinum er Ingibjörg Valgeirsdóttir.
Hópurinn stækkar og stækkar
„Þetta byrjaði sem lítill hópur sem ákvað að senda gjafir til Úkraínu,“ segir Ingibjörg spurð út í upphafsár verkefnisins. Þá hafi farið fimm hundruð kassar en verkefnið hafi ekki verið auglýst neitt heldur hafi gjafirnar borist frá æskulýðsstarfi KFUM og K, sem og þeirra vinum og vandamönnum hópsins, en síðan þá hafi hópurinn vaxið og vaxið.
Sjá einnig: Gleði og eftirvænting í hverju andliti
„Þetta er orðið miklu stærra batterí og allir sem koma að þessu vinna í sjálfboðastarfi,“ segir hún og útskýrir að verkefnið sé á vegum KFUM og K.
„ Við fáum að taka húsið þeirra eina viku á ári þar sem við setjum allt jólasveinaverkstæðið upp,“ segir Ingibjörg en það eru einnig móttökustöðvar um allt land og þar er fólk í samstarfi við hópinn sem tekur á móti og sendir svo kassa til þeirra í Reykjavík.
Kassarnir vandlega undirbúnir
Innihaldi kassanna er skipt í fimm flokka og er fólk sem vill gefa jól í skókassa beðið um að sjá til þess að í kassanum séu hlutir úr hverjum flokki.
„Við viljum fá eitthvað úr þessum fimm flokkum. Það eru leikföng, skóladót, hreinlætisvörur, sælgæti og föt,“ segir Ingibjörg en nánari upplýsingar um verkefnið má einnig nálgast á vefsíðu KFUM og K en meðal þess sem þarf að hafa í huga við gerð kassanna er aldur þess sem fær hann í jólagjöf.
„Við förum svo yfir hvern og einn kassa og bætum í ef vantar eða eitthvað gleymist,“ segir hún en svo fer hópur sjálfboðaliða með kassana, alla 4440 talsins, út fyrir jól.
„Við erum með samstarfsaðila í Kirovograd í Úkraínu og þangað fara kassarnir og svo er það KFUM og K í Úkraínu sem sjá um að dreifa kössunum,“ segir Ingibjörg og bætir við að það séu börn og unglingar sem fái kassa.
Hér fyrir neðan er hægt að skoða myndir af því þegar kössunum er pakkað, þeir yfirfarnir og loks fluttir út í heim.