Greint var frá því í gær, föstudaginn 13. nóvember, að fyrirtækið innkallaði 720.796 bifreiðar vegna hættu á að eldur kvikni á meðan bílarnir eru kyrrstæðir og slökkt á þeim, er fram kemur í umfjöllun fréttaveitunnar Reuters um málið.
Bifreiðarnar voru áður innkallaðar árið 2024 vegna vandkvæða í tengslum við vatnsdælur og þarf nú að gera við þær aftur, að sögn Umferðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna, sem bætti við að eigendur „ættu að leggja bifreiðinni utandyra og fjarri byggingum og öðrum ökutækjum þar til gert hefur verið við hana.“
BMW vinni nú enn að lausn vegna innköllunarinnar og þegar séu til skoðunar tíu eldsvoðar sem kunna að tengjast vandamálinu og urðu eftir að gert hafði verið við bifreiðarnar samkvæmt innkölluninni frá 2024.
Þær bifreiðar sem ættu ekki að vera geymdar innandyra þar til að lokinni viðgerð:
- BMW 3 Series, árgerðir 2012–2016
- BMW 5 Series, árgerðir 2012–2016
- BMW X1, árgerðir 2012–2015 • BMW Z4, árgerðir 2012–2016 • BMW X3, árgerðir 2013–2017
- BMW 2 Series coupe, árgerðir 2014–2016
- BMW 3 Series sportswagon, árgerðir 2014–2016
- BMW 328xi Gran Turismo, árgerðir 2014–2016
- BMW 4 Series blæjubíll, árgerðir 2014–2016
- BMW 4 Series coupe, árgerðir 2014–2016
- BMW 2 Series blæjubíll, árgerðir 2015–2016
- BMW 4 Series Gran Coupe, árgerðir 2015–2016
- BMW X4, árgerðir 2015–2018
- BMW X5 xDrive40e, árgerðir 2016–2018