„Það kviknaði í ruslatunnu við Lágmúla 4 og það var einn dælubíll sendur,“ staðfesti Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu Vísis.
Hann segir um 15 til 20 mínútur hafa liðið frá því að útkallið barst og þar til eldurinn hafði verið slökktur. Aðgerðum hafi lokið um 20 mínútur yfir fimm.