Eldra fólki er gefið of mikið af lyfjum og þeir sem taka lyfin verða að vera meira vakandi og endurskoða skammtana reglulega. Þetta segir prófessor í lyfjafræði við Kaupmannahafnarháskóla en þar er fagfólki kennt að annast fólk án þess að grípa strax til lyfja.
Landssamband eldri borgara stóð fyrir málþingi um lyfjanotkun eldra fólks undir yfirskriftinni Lyfjasúpan. Þar var fjallað um hvað fælist í þeirri súpu, afleiðingar of mikilla lyfja og niðurtröppunarmeðferðir. Oft þarf eldra fólk á lyfjum að halda vegna veikinda en ekki er þar með sagt að taka þurfi þau lyf ævina á enda.
Eldra fólk fái of mikið af lyfjum
„Það sem við þurfum eiginlega að gera í dag er að vera miklu meira vakandi fyrir því, bæði fagfólk og fólkið sjálft sem er að nota lyfin, að láta endurskoða þessa lyfjanotkun,“ segir Anna Birna Almarsdóttir, prófessor í lyfjafræði við Kaupmannahafnarháskóla.
Margt geti breyst, ekki sé lengur þörf á ákveðnum lyfjum og líkaminn breytist með aldrinum alveg eins og sjónin. Fólk þurfi að valdeflast gagnvart eigin lyfjatöku, krefjast þess að fá lyfjarýni sem er yfirferð frá fagaðila um samsetningu lyfjanna.
Erum við að gefa eldra fólki of mikið af lyfjum?
„Já er stutta svarið,“ segir Anna Birna.
Þarf ég á öllum þessum lyfjum að halda?
Yfir fjörutíu þúsund manns eru í Landssambandi eldri borgara í yfir 60 aðildarfélögum um allt land og fer fjölgandi því eldra fólki snarfjölgar. Það er því til mikils að vinna að minnka skammtinn af lyfjasúpunni.
„Ég hef séð það í Danmörku til dæmis að það er verið að kenna starfsfólki hjúkrunarheimila hvernig það getur betur annast fólk með heilabilun þannig að það verði ekki eins æst og þurfi ekki að róa það með róandi lyfjum,“ segir Anna Birna.
Björn Snæbjörnsson, formaður Landssambands eldri borgara, segir málþingið senda skilaboð til eldri borgara.
„Passið ykkur, hugsið meira um hvað þið eruð að taka og leitið ykkur upplýsinga í apóteki eða til heimilislæknis. Þarf ég á öllum þessum lyfjum að halda eða ekki?“