Vinna við að skipta út koparstreng fyrir ljósleiðara varð til þess að flugumferðarkerfið í Bandaríkjunum hrundi í gær. Þetta segir Sean Duffy, samgönguráðherra landsins. Hann segir uppfærsluna hafa valdið því að beinir ofhlóð flugumferðarstjórnarkerfið og olli samskiptatruflunum við flugvélar.
Stjórnvöld eru að reyna að komast að því hvort vandann megi rekja til „vanhæfni“ fyrirtækisins sem sá um uppfærsluna eða til gallaðs búnaðar, að sögn Duffy.
„Við ætlum að draga fólk til ábyrgðar,“ sagði hann á blaðamannafundi.
Öll flugumferð í Bandaríkjunum var stöðvuð í gærkvöld vegna vandamála í fjarskiptakerfi flugumferðarstjórnar. Að minnsta kosti 10.000 flugferðum var seinkað og 5.000 ferðum aflýst. Bandaríska flugmálastjórnin aflétti kyrrsetningunni á öðrum tímanum í nótt.
Kyrrsetningin var sú lengsta síðan flugumferð var stöðvuð eftir hryðjuverkaárásirnar þann 11. september 2001.
Bandarísk stjórnvöld telja ekki að um netárás hafi verið að ræða en rannsókn stendur enn yfir.
„Við sjáum engar vísbendingar um neitt saknæmt og engar vísbendingar um neitt sem tengist gervigreind,“ sagði Bryan Bedford, yfirmaður bandarísku flugmálastjórnarinnar, FAA, á blaðamannafundi.