Í fréttatilkynningu þess efnis segir að framkvæmdir við búningsklefa kvenna og karla í Sundhöll Reykjavíkur hafi staðið yfir frá því í sumar og reynst umfangsmeiri en upphaflega var gert ráð fyrir. Vegna þeirra hafi þurft að takmarka fjölda gesta í lauginni, og frá því að skólasund hófst í ágúst hafi einnig þurft að skerða opnunartíma hennar á virkum dögum.
Nú verði þessar takmarkanir úr sögunni og gestir geti aftur sótt Sundhöllina á hefðbundnum opnunartíma og án sérstakra fjöldatakmarkana.
Með opnun kvennaklefans geti konur aftur nýtt búningsaðstöðu sína innandyra og útiklefarnir tveir, sem tímabundið hafi verið nýttir sem kvennaklefar, verði aftur aðgengilegir bæði körlum og konum, hvorum í sínum klefa.
Framkvæmdir við karlaklefann standi enn yfir og stefnt sé að opnun hans snemma á nýju ári. Þangað til muni karlar áfram nýta gamla búningsklefann á neðri hæð Sundhallarinnar, sem hafi verið endurgerður í fyrri framkvæmdum og bjóði upp á góða aðstöðu.
„Reykjavíkurborg þakkar gestum Sundhallarinnar fyrir sýnda þolinmæði og skilning á meðan framkvæmdum hefur staðið og býður alla hjartanlega velkomna í Sundhöll Reykjavíkur.“