Frumvarp um aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi var afgreitt úr ríkisstjórn í morgun. Framleiðsla barnaníðsefnis er að mestu gróðadrifin, eins og önnur skipulögð brotastarfsemi, segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.
Í frumvarpinu eru skipulagðir brotahópar skilgreindir á skýrari hátt en áður og hámarksrefsing fyrir þátttöku í slíkri starfsemi er hækkuð úr fjórum árum í átta.
Hægt verður að þyngja refsingar í málum sem varða skipulagða brotastarfsemi eða ef börn eða ungmenni eru fengin til að taka þátt í starfseminni, ásamt því að hámarkslengd gæsluvarðhalds, í alvarlegri málum, verður sex mánuðir í stað tólf vikna.
Þá verður heimilt að gera upptæk verðmæti sem ætla má að séu afrakstur brotastarfsemi.
Fjármagnið hjartað í skipulagðri brotastarfsemi
„Hjartað í þessari starfsemi er alltaf fjármagn. Þetta er drifið áfram af fjármagni og eftirspurnin helgast af fjármagni þannig að við viljum veikja þá með því að auka heimildir til að gera fjármagnið einfaldlega upptækt,“ segir Þorbjörg Sigríður.
Eins og fram kom í Kveik í vikunni er barnaníðsefni á netinu sífellt aðgengilegra og grófara. Þorbjörg þekkir málaflokkinn vel enda vann hún áður við meðferð slíkra mála.
„Í mínu fyrra starfi þá kom það mér mjög á óvart þegar ég sá efni eins og þetta í fyrsta sinn hversu gróft það er. Það er þannig að það hefur áhrif á mann svo ég dáist að því fólki innan lögreglu, ákæruvaldsins og dómstólanna sem fer með þessi mál,“ segir Þorbjörg.
Þorbjörg segist lengi hafa verið hugsi yfir þyngd dóma vegna vörslu barnaníðsefnis. „Því það þarf auðvitað að hugsa þau brot þannig að þau sem horfa á svona efni halda framleiðslunni gangandi,“ segir hún.
Áhorfendur stuðli að því að brotið sé kynferðislega á börnum
„Þau stuðla að því að brotið er kynferðislega gegn börnum og í mörgum tilvikum pínulitlum börnum, kornabörnum jafnvel,“ segir hún. „Þú getur aldrei verið í einhverju hlutlausu hlutverki áhorfandans þar.“
Á myrkravefnum hefur vefsíðum sem hýsa barnaníðsefni fjölgað hratt síðustu ár og í fyrra voru þær að minnsta kosti yfir sjö hundruð talsins. Nær allar voru reknar í gróðaskyni.
„Það er auðvitað mjög ógeðfellt til þess að hugsa að þessi skipulagða brotastarfsemi, eins og önnur, er drifin áfram af fjármagni og það frumvarp sem ég kynnti hér ríkisstjórn í dag ætti líka að hjálpa okkur að að sporna gegn þessari iðju,“ segir Þorbjörg.