Á fundi sínum í vikunni vísaði borgarráð frá tillögu um að opna aftur fyrir rafmagn og vatn í hjólhýsabyggðinni við Sævarhöfða yfir veturinn. Byggðin fluttist á Sævarhöfða sumarið 2023 þegar íbúnum var gert að yfirgefa tjaldsvæðið í Laugardal. Til stóð að færa hana í Gufunes og var gerður samningur en þegar nýr meirihluti tók við í sumar var samningnum rift.
Rafmagnið og vatnið var tekið af byggðinni þann 1. nóvember en þá hafði borgin gert hjólhýsabúum að rýma svæðið.
Inga birti færslu á Facebook þar sem hún gagnrýndi málið og ræddi síðan ítarlega sína skoðun í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.
„Mér finnst það náttúrulega bara ömurlegt en það kemur mér ekkert á óvart. Ég var búin að heyra í Einari Þorsteinssyni þegar hann var borgarstjóri og þá var það greinilega einbeittur vilji hans og bara hreinir og klárir fordómar gagnvart þessu búsetuformi sem þessir einstaklingar hafa kosið sér,“ sagði Inga.
„Það kemur mér ekkert á óvart að þetta skuli vera eitt af því fyrsta sem hann vill hrinda í gegn.“
Hún sagðist sömuleiðis ætla að efna til söfnunar fyrir íbúana sem eru tólf talsins.
„Ég ætla bara að stofna hér annaðhvort til söfnunar eða reyna fá fólk til að koma saman og við kaupum rafstöðvar fyrir þessa einstaklinga,“ sagði Inga.
Á ábyrgð borgarinnar
Inga sagði það koma sér á óvart að á sama tíma og talað væri ítrekað um hvernig Rússar réðust á orkuinnviði Úkraínumanna til að gera veturinn kaldari og erfiðari.
„En að við skulum vera að ganga svona gróflega fram gagnvart þessum fáu einstaklingum sem hafa kosið sér þessa búsetu, flestir þeirra vegna vanefna. Ég veit að þarna eru sjúklingar og bara ósköp venjulegt fólk, eins og ég og þú, þannig að ég ætla að taka af þeim rafmagn og vatn. Ég hef bara aldrei heyrt annað eins, ef ég á að segja eins og er,“ sagði hún.
Málið sé algjörlega á ábyrgð borgarinnar og sé því lítið sem hún sjálf geti gert. Engin bráðabirgðahúsnæði séu á forræði ríkisins til að bjóða upp á heldur verði Reykjavíkurborg að bregðast við.
„Löggjafinn getur líka komið inn að einhverju leyti og ég veit það að svona búsetuform þekkjast víða þó að við eigum að vera svona fín með okkur að það eigi ekki að eiga sér stað að gefa fólki kost á slíku búsetuúrræði.“
Um B-búsetuskráningu sé að ræða og hafi það verið til skoðunar en lent á milli ráðuneyta. Hún ítrekar að verið sé að vinna í því máli.
Gefur lítið fyrir skýringar slökkviliðsins
Sömuleiðis gaf hún lítið fyrir skýringar meirihluta borgarstjórnar sem vísaði í umsögn slökkviliðsins. Þar kom fram að slökkviliðið krefðist þess að ráðist yrði í úrbætur þar sem uppbygging væri fyrirhuguð á svæðinu.
Sjá nánar: Hjólhýsabyggð í Reykjavík
„Svo er verið að reyna að kenna slökkviliðinu um þetta. Þetta er náttúrulega bara ömurlegt að hlusta á þetta og ég veit að slökkviliðinu er engan veginn um að kenna,“ sagði Inga.
Ja, slökkviliðið er að tala um ófullnægjandi brunavarnir.
„Það getur kviknað í hjólhýsinu þínu hvar sem er. Ég veit ekki betur en að landinn sé með fullt af tengivögnum og faraldsfæti hér allt sumarið með hjólhýsi og slökkviliðið sé ekki mikið að skipta sér af því,“ svaraði hún en ítrekar að hver og einn þurfi að huga að sínum brunavörnum þegar dvalið er í hjólhýsi.
„Þannig að þetta er náttúrulega bara hártögun og ekkert annað. Það er bara verið að reyna að þvinga fólkið og fyrsta það það mikið að það neyðist til þess að fara eitthvað annað.“