Tónlistarkonan Avril Lavigne er orðin móðir. Þessum gleðitíðindum deildi Lavigne á Instagram en hún hafði ekki greint frá því opinberlega að hún ætti von á barni. Eins hefur hún ekki deilt því hver barnsfaðir hennar og sambýlismaður er. Hann er því huldumaður sem stendur.Lavigne, sem er 42 ára, deildi myndum þar sem hún og barnsfaðir hennar halda um hendur litlu stúlkunnar. Á annarri sést tónlistarkonan með barnið í fanginu. Einnig deildi hún mynd af hjólabretti þar sem mátti finna þrjú skópör. Öll eru þau eins nema í mismunandi stærðum, eitt par fyrir hvern fjölskyldumeðlim.
Avril Lavigne deilir óvæntum tíðindum - Eignaðist barn með huldumanni