Myndskeið úr eftirlitsmyndavél náði þeirri skelfilegu stund þegar fjölbýlishús í Brooklyn í New York hrundi til jarðar á miðvikudag með þeim afleiðingum að átta létust, þar af tvö börn á aldrinum 9-10 ára, og 18 særðust.Myndskeiðið, sem CBS News birti í dag, var tekið upp inni í íbúð Anderson Velez á þriðju og efstu hæð að Flatbush Avenue 1321, þar sem hann bjó með konu sinni og tveimur ungum börnum, aðeins sekúndum áður en byggingin hrundi ofan í byggingargryfju á aðliggjandi lóð þar sem gröftur stóð yfir.
Myndskeið sýnir augnablikið þegar fjölbýlið í Brooklyn hrundi - 2 ára barn að leik á stofugólfinu