Svarthöfði er þeirrar skoðunar að fá ef nokkur störf séu leiðinlegri en seta á Alþingi. Þrátt fyrir glæsta umgjörð í gömlum og nýjum byggingum og aðbúnað eins og best verður á kosið er innihald starfsins hreint og beint hundleiðinlegt.Svarthöfði telur sig fá stuðning við þessa skoðun sína með því að horfa á fréttir Ríkisútvarpsins af þingstörfum þar sem jafnan er brugðið upp yfirlitsmyndskeiðum úr þingsal. Svipir þingmanna bera þess merki að þeir séu sárþjáðir af veru sinni í þinginu og engu líkara en að þeir séu í eins konar sjálfskipaðri þjóðarsorg.
Svarthöfði skrifar: Þingmennskan er hundleiðinleg