Jón Svanberg Hjartarson, forstjóri Neyðarlínunnar, segir í samtali við fréttastofu um klukkan 16:35 að símanúmerið 112 eigi að vera komið í fulla virkni á ný, eftir að hafa legið niðri í rúma klukkustund. Neyðarlínan keyri númerið nú á varasímstöð á meðan unnið sé að því að greina bilun í aðalsímstöð Neyðarlínunnar.
Hann segir ómögulegt að segja til um það á þessu stigi hvort bilunin hafi orðið til þess að einhver sem þurfti á því að halda hafi ekki náð í Neyðarlínuna. Hann voni svo sannarlega að svo hafi ekki verið en það sé í öllu falli grafalvarlegt mál að fólk geti ekki hringt í 112.
Það er óveður víða á landinu, er ekki mjög óheppilegt að þetta sé úti á þeim tíma?
„Það er bara alltaf óheppilegt að þetta símanúmer detti úr virkni. Þetta er mín stærsta martröð, að það gerist. En svona er þetta með tæknina, hún er ekki óskeikul.“
Þá segir hann að starfsfólk Neyðarlínunnar sé komið niður á þá niðurstöðu að ekki hafi verið um nokkurs konar tölvuárás að ræða.
„Við teljum að þetta sé bara bilun í símstöðinni okkar en við vitum ekki nákvæmlega hvers eðlis hún er. Ég heyri á mínu fólki að menn telja sig nokkuð vissa um að þetta sé ekki tölvuárás og tengist ekki Microsoft-biluninni.“
Loks segir hann að það sé mikilvægt að fólk sé meðvitað um að til sé varanúmerið 599-0112.