Kærunefnd útlendingamála hefur fellt úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar um að vísa albönskum karlmanni úr landi. Maðurinn hlaut dóm fyrir morð í heimalandinu og hefur komið í nokkur skipti við sögu hjá lögreglu hér á landi, en hann er nú til rannsóknar vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni.Í lýsingu í úrskurði nefndarinnar á málsatvikum kemur fram að maðurinn hafi lagt fram umsókn um dvalarleyfi fyrir maka Íslendings í janúar 2023. Honum hafi, samkvæmt lögum um útlendinga, verið heimilt að dvelja á landinu á meðan umsóknin væri til meðferðar.
Framdi morð og sakaður um kynferðisbrot gegn barni en fær að vera áfram á Íslandi