„Það var heimsstyrjöldin,“ segir Óli í þættinum Um land allt.
Tundurdufl hafði rekið upp í fjöruna neðan Skála.
„Það verður gríðarleg sprenging og grjóthríðin inn um gluggann í herbergi þarna sem enginn var í og sneri að sjónum. Húsið snérist á grunninum og skekktist um margar gráður. Allt fór í rúst. En húsið hrundi ekki. Það hélst uppi. Það held ég að hafi farið illa ef það hefði hrunið,“ segir Óli.
Í þorpinu að Skálum bjuggu yfir eitthundrað manns þegar mest var í kringum 1920 en íbúum hafði fækkað um helming þegar foreldrar Óla Ægis fluttu þangað árið 1938.
„Það var sko á móti straumnum því að það voru flestir að fara þaðan. En þau fengu ódýrt hús.“
Óli segir alla í þorpinu hafa vaknað við sprenginguna.
„Allir voru tilbúnir að hjálpa en ljósmóðirin lagði blátt bann við því að hún yrði þarna lengur. Það gæti komið annað tundurdufl hvenær sem væri.
Og þá komu menn frá Skoruvík og buðu þeim að koma þangað norður, fjölskyldunni allri. Þarna fæddist ég þremur dögum seinna, 1. desember. Þá var fjölskyldan orðin sex.“
Hér má sjá átta mínútna kafla úr þættinum:
Um vorið var fjölskyldan ferjuð til Þórshafnar.
„Og þar hófu þau bara nýtt líf. Engar bætur fengust fyrir húsið. Þau fengu þau skilaboð að það væri tryggt fyrir eldi en ekki fyrir tundurduflum.“
Yst í tangi Langaness heitir Fontur og er með snarbröttu sextíu metra háu fuglabjargi. Vitanum þar var sinnt frá bænum Skoruvík.
Steinunn Björg Björnsdóttir, sem núna býr á Þórshöfn, ólst upp í Skoruvík til 25 ára aldurs. Við höldum að hún sé sá Langnesingur á lífi sem síðast bjó á útnesi Langaness.
-Ert þú eini eftirlifandi íbúinn af útnesinu?
„Það held ég,“ svarar Steina Bogga, eins og hún er jafnan kölluð, en þorpið að Skálum var komið í eyði þegar hún fór að muna eftir sér.
Eldri lesendur muna eflaust eftir veðurskeytum frá Skoruvík en foreldrar Steinu Boggu sinntu vitanum og veðurathugunum auk þess að rækta sauðfé. Hún segir fuglabjörgin hafa verið nytjuð, sigið hafi verið eftir bjargfuglseggjum og mikið borðað af fuglakjöti.
Fjölskyldan í Skoruvík bjó við mikla einangrun. Vistir fengu þau sendar einu sinni á ári með varðskipi og þangað var ekki lagður vegur fyrr en árið 1962. Fram að þeim tíma þurfti pabbi hennar að fara fótgangandi tólf kílómetra leið út á Font til að sinna vitanum.
„Þetta var erfitt líf. Þetta tók daginn,“ segir Steina Bogga.
Þátturinn um Langanes var frumsýndur síðastliðinn miðvikudag. Hann verður endursýndur á Sýn+ í hádeginu á morgun, sunnudag, klukkan 12:35. Þáttaröðina alla má nálgast á streymisveitu Sýnar.
Hér má sjá sýnishorn úr fleiri þáttum: