Ali al-Zaidi forsætisráðherra Íraks hefur rekið níu embættismenn vegna gruns um að þeir hafi stundað olíusmygl. Rannsókn á málinu var hafin í síðustu viku en olíunni var smyglað á svæði sem stjórnað er af vígasveitinni Kataib Hezbollah. Hún nýtur stuðnings íranskra stjórnvalda.
Ríkisfréttamiðill Íraks, INA, greindi frá því á miðvikudag að gervihnattamyndir hefðu náðst sem sýndu vopnaða hópa smygla hráolíu og öðru efni sem unnið er úr olíu af svæðinu, Jurf al-Sakher.
Al-Zaidi komst til valda með aðstoð Bandaríkjanna og hann er undir sífellt meiri þrýstingi frá þarlendum stjórnvöldum um að taka á vopnuðum hópum í landinu sem studdir eru af Íran.
Hann hefur heitið því að tryggja að vígasveitir skili vopnum sínum til stjórnvalda og sumar þeirra hafa orðið við því. Stærri og valdameiri sveitir, þar á meðal Kataib Hezbollah, hafa þó neitað að afvopnast og eru forsætisráðherranum enn þá óþægur ljár í þúfu.