Tveir karlmenn voru teknir af lífi í Sádí Arabíu í dag. Þeir voru sakfelldir fyrir margvísleg brot á borð við hryðjuverk á vegum erlendrar hreyfingar og skotárás á öryggissveitir. Tvímenningarnir voru líflátnir skömmu eftir að hæstiréttur hafnaði áfrýjun þeirra.
Mannréttindasamtökin Reprieve, sem hafa aðsetur í Lundúnum, segja við AFP að annar mannanna hafa verið handtekinn í desember 2020 fyrir skipulagningu og þátttöku í mótmælum þegar hann var fjórtán ára.
Samtökin segja hann hafa verið pyntaðan til að játa á sig upplognar sakir og að sakfelling sé hluti hefndaraðgerða krónprinsins Mohammed bin Salman gegn fjölskyldu mannsins.
Reprieve segir öryggissveitir hafa banað eldri bróður hans árið 2011 og tveir til viðbótar dæmdir til langrar fangavistar. Þau segja að í ríki krónprinsins sé dauði refsingin fyrir andóf af öllu tagi og að börnum sé ekki hlíft.
Frá því í ágúst á síðasta ári hafa fimm karlmenn úr sjía-fjölskyldum í Austurhéraði landsins verið teknir af lífi sem voru á barnsaldri þegar þeir voru dæmdir fyrir, að sögn samtakanna. Öll hafi þau tengst mótmælum í arabíska vorinu fyrir fimmtán árum. Amnesty segir Sáda í þriðja sæti á eftir Kína og Íran þegar kemur að fjölda aftaka síðustu ár.