Ferðin hófst í gærkvöldi, föstudaginn 12. nóvember, en Starship-geimfar SpaceX sneri aftur úr 22 klukkustunda ferð nú á tíunda tímanum en ferðin er söguleg að mati margra.
Fyrirtækið hafði vonast til að grípa bæði neðra og efra þrep eldflaugarinnar með vélörmum á skotturninum en það var hætt við fyrstu tilraunina til að grípa neðri hluta eldflaugarinnar nokkrum mínútum eftir geimskotið á föstudag. Var honum beint út á haf þar sem hann stóð í ljósum logum rétt yfir sjávarmáli.
Það að SpaceX hafi hins vegar tekist að grípa efri hlutann en áfanginn er lykilatriði í áratugalangri viðleitni SpaceX sem hefur á undanförnum árum þróað tækni til þess að fljúga eldflaugarþrepum aftur til jarðar í heilu lagi sem hefðu annars verið einnota, er fram kemur í umfjöllun miðla á borð við Sky news.
Starship, sem er um 52 metrar á hæð, birtist neðan úr þykkum skýjum yfir bækistöðvum SpaceX í Texas. Hreyflarnir voru ræstir á ný til að snúa geimfarinu lóðrétt og láta það síga hægt niður í arma turnsins.
Hafði flaugin þá farið fjórtán sinnum umhverfis jörðina á rúmum 22 klukkustundum. Hér fyrir ofan má sjá myndband af því þegar áhorfendur trylltust úr spenningi yfir áfanganum.