Erlendur ríkisborgari var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald í fyrrakvöld, eða til 9. desember, og er þar með tíundi maðurinn sem fer í gæsluvarðhald vegna Straumsvíkurmálsins. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglu.Gæsluvarðhaldið byggir á almannahagsmunum en embætti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú innflutning á 106 kílóum af kókaíni sem voru flutt til Íslands sjóleiðis í sumar.Tíundi maðurinn var handtekinn í Rúmeníu og framseldur til Íslands. Hinir níu aðilarnir, þrír Íslendingar og sex erlendir ríkisborgarar, eru enn í haldi.
Tíundi maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald