Í kvöld gengur í norðan og norðvestan stórhríð á Norður- og Austurlandi í kvöld. Sömuleiðis má búast við norðvestan stormi eða roki á Suðausturlandi og Austfjörðum í nótt og fyrri part dags á morgun.
Búið er að gefa út veðurviðvaranir um mest allan hluta landsins.
Í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi vestra segir að búið sé að loka Þverárfjallsvegi, Langadal og Vatnsskarði. Einnig sé búið að loka þjóðveginum við Blönduós vegna fastra bíla.
„Það á ENGINN að vera á ferðinni“
Steingrímsfjarðarheiði hefur verið lokað og Þröskuldar eru ófærir.
Öxnadalsheiði er á óvissustigi og gæti verið lokað með skömmum fyrirvara. Það sama á við um Ísafjaðardjúp, Gemlufallsheiði og Dynjandisheiði. Einnig er búist við því að Klettsháls, Kleifaheiði, Hálfdán, Miklidalur og Súgandafjörður verði ófærir í kvöld.
Vegagerðin stefnir á að loka Vopnafjarðarheiði, Möðrudalsöræfum og Mývatnsöræfum um klukkan sex.
Hægt er að fylgjast með færðinni á vef Vegagerðarinnar.
Innanlandsflugi til Norðurlands og Vestfjarða hefur verið aflýst í dag.