Komur og tekjur af skemmtiferðaskipum hafa dregist saman í ár samkvæmt samantekt fyrirtækisins Cruise Iceland.
Í tilkynningu undirritaðri af Sigurði Jökli Ólafssyni, framkvæmdastjóra Cruise Iceland, segir að tekjur hafna vegna komu skemmtiferðaskipa séu um 450 milljónum lægri en árið 2025. Það sé um 10% lækkun milli ára þrátt fyrir að Ísland hafi notið mikilla vinsælda sem áfangastaður í ár, einkum vegna sólmyrkvans í ágúst.
„Tekjutap sem má rekja til afleiðinga af fyrirvaralausri álagningu of þungs innviðagjalds og óstöðugleika í rekstrarumhverfi hringsiglingaleiðangursskipa á árunum 2023 til 2025.“
Gera megi ráð fyrir enn meiri samdrætti á komandi árum. Þá hafi hafnarkomum fækkað um 146 á árinu eða um 12%. Heildarfjöldi farþega skemmtiferðaskipa hafi lækkað um tæp 30 þúsund. Dagsferðalöngum hafi fækkað um 140 þúsund.
Fyrirtækið segir fækkun í skipakomum koma harðast niður á smærri höfnum eins og á Borgarfirði eystri, Húsavík, Djúpavogi og Siglufirði. Í sumum tilvikum hafi skipakomum fækkað um allt að 65%. Engin skemmtiferðaskip hafi komið í Bolungarvík og Þórshöfn á Langanesi á árinu.