William, sautján ára, fór með vini sínum í útilegu um það bil 180 kílómetrum vestan við Melbourne í Ástralíu. Það var síðasta föstudag sem hann hvarf skyndilega. Við tók löng leit sem tók alls sex daga.
Lögregluyfirvöld á svæðinu höfðu miklar áhyggjur þar sem að afar kalt var á svæðinu um næturnar. Lögregluhundar komu að leitinni auk þess sem viðbragðsaðilar leituðu úr þyrlum.
Það var loks á fimmtudagsmorgun sem William fannst og komst aftur í faðm fjölskyldu sinnar. Myndskeið af William þar sem hann liggur á steini, að því er virðist mjög sólbrenndur, hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlum. Að sögn móður hans hafði hann verið kyrr á sama stað og beðið eftir því að einhver myndi koma honum til bjargar.
🚨Shocking; Teen found alive after 6 days in Australian bush 🚁 17-year-old William, missing since Nov 6 near Walhalla, Victoria, was spotted by a police helicopter by a creek on Nov 12. He gave a thumbs-up and was winched to safety with only sunburn and scrapes. 🙏 https://t.co/4ooRZvAvvH
— Delta Plus (@the_deltaplus) November 12, 2026
Fyrstu viðbrögð fjölskyldu hans voru gleði en sömuleiðis væri hann í straffi fyrir lífstíð.
„Það er í góðu lagi með hann, allt lítur vel út og hann er við fullkomna heilsu,“ sagði Elizabeth Barkley, móðir hans, samkvæmt umfjöllun BBC.
„Hann fær aldrei að fara út aftur.“