Lagvissar lesbíur og kjánalegir karlar
Þorvaldur S. Helgason skrifar um 27, sem sýnt er í Borgarleikhúsinu.
Gertrude Stein og Alice B. Toklas áttu eina af áhugaverðustu ástarsögum heimsbókmenntanna; tvær lesbíur sem lifðu saman sem hjón í París á fyrri hluta 20. aldar og voru í hringiðu evrópsks listalífs á mestu umbrotatímum módernismans.
Gertrude Stein var bandarískur rithöfundur og listasafnari, sem er líklega þekktari fyrir goðsögnina sem hún skapaði í kringum nafn sitt heldur en eiginleg verk sín. Alice B. Toklas var sambýliskona Gertude Stein og síðar útgefandi verka hennar, en ein þekktasta bók Stein heitir einmitt Sjálfsævisaga Alice B. Toklas.
Hinsegin ástir og örlög
Ást þessara tveggja kvenna er umfjöllunarefni óperunnar 27 sem er fyrsta verkefni hins nýstofnaða óperukompanís hinÓperunnar og var frumsýnd í Borgarleikhúsinu um síðustu helgi. Óperan var fyrst sett upp í Saint Louis í Bandaríkjunum fyrir hartnær áratug með tónlist eftir Ricky Ian Gordon og líbrettó eftir Royce Vavrek og er sýningin í Borgarleikhúsinu flutt á upprunalega tungumálinu, ensku.
…